STARFSMANNAFÉLAGIÐ sér um allt fyrir þig...
Á meðan þú situr yfir dásamlegum kaffibolla - rétt eins og þeim hér til hliðar - er STARFSMANNAFÉLAGIÐ að störfum að skipuleggja og undirbúa fyrir þig. Það kostar þig og fyrirtækið þitt mikla fyrirhöfn að skipuleggja uppákomur fyrir starfsfólkið. Það er hins vegar það sem við gerum best. Heildarlausnir STARFSMANNAFÉLAGSINS fyrir starfsmannafélagið þitt, saumaklúbbinn, hjónaklúbbinn, matarklúbbinn, ferðaklúbbinn, kórinn eða sem sagt hvern sem er.
STARFSMANNAFÉLAGIÐ hefur þá skoðun að FITNESS sé eitthvað sem allir geta tekið þátt í. Þess vegna býður STARFSMANNAFÉLAGIÐ upp á fitness bæði innan borgarmarkanna, sem er þá svona hefðbundin fitness-braut í umsjá Hjalta Úrsusar og Andrésar Guðmundssonar, bæði fyrir konur og karla, og að auki er boðið upp á svokallað Sveita-Fitness, en það fer frá undir styrkri stjórn Guðmundar Hallgrímssonar, bústjóra á Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri. Þá er brautin byggð upp eins og hefðbundinn dagur í lífi bónda.
Fitness hentar hópum til þess að skapa andrúmsloft samkeppni en jafnframt andrúmsloft hvatningar til góðra verka!!!
Ef eitthvað af þessu sem hér að ofan er nefnt heillar þig þá skaltu ekki hika við að hafa samband við okkur. Þess ber þó að geta að við eigum meira til, þetta eru bara nokkrar hugmyndir!! Þú hefur bara samband við okkur á
starfsmannafelagid@starfsmannafelagid.com
ferdanefndin@starfsmannafelagid.com
skemmtinefndin@starfsmannafelagid.com
valdi@starfsmannafelagid.com
Í sameiningu finnum við ferðina sem þú ert að leita að, uppákomuna sem þig vantar, hópeflið sem vinnustaðinn vantar, það sem þarf til þess að bæta móralinn á vinnustaðnum, gera góðan móral betri og allt þar fram eftir götunum...
|