STARFSMANNAFÉLAGIÐ sér um allt fyrir þig...
Á meðan þú situr yfir dásamlegum kaffibolla - rétt eins og þeim hér til hliðar - er STARFSMANNAFÉLAGIÐ að störfum að skipuleggja og undirbúa fyrir þig. Það kostar þig og fyrirtækið þitt mikla fyrirhöfn að skipuleggja uppákomur fyrir starfsfólkið. Það er hins vegar það sem við gerum best. Heildarlausnir STARFSMANNAFÉLAGSINS fyrir starfsmannafélagið þitt, saumaklúbbinn, hjónaklúbbinn, matarklúbbinn, ferðaklúbbinn, kórinn eða sem sagt hvern sem er.
STARFSMANNAFÉLAGIÐ getur boðið þér að skaffa inn í fyrirtækið vandaðar spurningakeppnir og eins aðra leiki sem eru til þess fallnir að annars vegar skapa samkeppni og hins vegar samstöðu, eftir því hvað við á hverju sinni. Þetta gæti verið einmitt það sem þitt fyrirtæki er að leita að.
Ef eitthvað af þessu sem hér að ofan er nefnt heillar þig þá skaltu ekki hika við að hafa samband við okkur. Þess ber þó að geta að við eigum meira til, þetta eru bara nokkrar hugmyndir!! Þú hefur bara samband við okkur á
starfsmannafelagid@starfsmannafelagid.com
ferdanefndin@starfsmannafelagid.com
skemmtinefndin@starfsmannafelagid.com
valdi@starfsmannafelagid.com
Í sameiningu finnum við ferðina sem þú ert að leita að, uppákomuna sem þig vantar, hópeflið sem vinnustaðinn vantar, það sem þarf til þess að bæta móralinn á vinnustaðnum, gera góðan móral betri og allt þar fram eftir götunum...
|